Bambus – sjálfbær og umhverfisvænn
Vissir þú að bambus er sjálfbær, umhverfisvænn og svo hraðvaxta að hann getur vaxið um næstum metra á sólarhring? Og að hægt er að nota hann í fatnað, klósettpappír, báta, eldhúsáhöld og ótalmargt fleira sem við notum í daglegu lífi? Bambusinn er einnig nýttur í matargerð og hann er þekkt lækningajurt, t.d. til að græða sár. Svo er bambus bakteríudrepandi frá náttúrunnar hendi.
Bambus er ekki tré, heldur af grasaætt og vex hraðast af öllum grösum í heimi. Hann gefur frá sér um þrjátíu prósent meira af súrefni en tré og er því mikilvægur fyrir framleiðslu á súrefni og kolefnisjöfnun í heiminum. Um átta þúsund ár eru frá því að byrjað var að nýta bambus en með nýrri tækni er nú hægt að búa til hágæðatextíl úr þráðum hans, sem notaður er í þægilegan fatnað.
ÞÆGILEGUR OG SJÁLFBÆR FATNAÐUR ÚR BAMBUSI
Hundrað prósent lífrænt ræktaður bambus er notaður í fötin frá Boody Bamboo Eco Wear, sem eru sjálfbær og umhverfisvæn. Það er góð tilfinning að vera með umhverfisvænan fataskáp, en allt framleiðsluferli Boody, frá hráefni til pakkninga, er miðað að umhverfisvernd. Fatnaðurinn er silkimjúkur, hitatemprandi, teygjanlegur, andar vel og hrindir frá sér vatni. Vegna þessara eiginleika henta fötin vel í göngur, hlaup, jóga, til að sofa í og dagsdaglega heimavið og í vinnu. Efnið er ekki ofnæmisvaldandi, heldur ver gegn sveppasýkingum og eyðir lykt. Boody Bamboo Eco Wear kemur í þremur línum, almenn lína með nærfötum, sokkum, bolum og leggings, íþróttaföt og heimagallar.
Boody Bamboo Eco Wear fæst í apótekum, Nettó og Fjarðarkaupum. Heimagallarnir fást í Hagkaup.
UMHVERFISVÆNN KLÓSETTPAPPÍR OG ELDHÚSPAPPÍR
Bambus er einnig notaður til að framleiða klósett- og eldhúspappír. Hempur er umhverfisvænn klósettpappír og eldhúspappír. Hann er óbleiktur, mjúkur og sjálfbær en það þarf minna af vatni og orku til að framleiða pappír úr bambus en þann hefðbundna. Við framleiðsluna eru ekki notuð nein eiturefni.
Klósettpappír og eldhúspappír frá Hempur fæst í stórmörkuðum.